Jói Bjarni Bloggar

Blogg svona annaðslagið!!

24.03.2008 20:07:03 / joibjarna

HÆTTUR!!!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 22:24:52 / joibjarna

Á lífi!!

Ástralía er það sem af er komið GEÐVEIK!! við erum búin að gera fullt þó við séum bara búin að hafa 2 daga hérna!! Flugferðin var samt sem áður HELL!! rúmir 20 klst. þar sem ég sat við hliðiná einhverjum tröllum sem tóku allt pláss!!

 En annars þá er ég búin að prófa að Surfa og var skellt sér í það á fyrsta degi og er planið að taka surf roadtrip, heila viku þar sem við ætlum að leigja okkur van og rúnta á allar strendur sem við náum til, og líklegast tjaldað eða bara sofið í bílnum!! :)

Í gær fórum við á BIG DAY OUT sem er tónleikafestival hér í Sydney og sáum við Spoon, Arcade Fire og Rage Against The Machine. Björk átti að spila þarna líka en var eitthvað slöpp svo hún þurfti að cancella útaf einhverjum veikindum!!

En nóg í bili!! veit ekki hvort ég geri mikið af því að blogga hérna á meðan ég er hér en aaalllaavega LATER!

 kv. Jói Bjarni


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 13:23:24 / joibjarna

2 DAGAR!!

JÆJA þá eru það bara 2 dagar.. eða í raun minna.. það eru 42 klst. í brottför!!

 

 

 

 

kv. Jói Bjarni 


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 23:23:35 / joibjarna

ÚPS!!!!!

KLAUFI!!

ég var í mínum eigin heimi að keyra, SYNGJA með útvarpinu, borða langloku, skrifa skilaboð og tala í síman þegar það án þess að ég tók eftir var HÁLKA!! og ég náði ekki beyjunni og bara BÚMM!!! keyrði útaf og yfir einhverja undirstöðu fyrir umferðarskilti!!

 

 

Við það að ég keyrði yfir þessa undirstöðu þá snérist hún og LIFTI bílnum upp og blessaði KAGGINN náði engu gripi og var þarna bara eins og einhver belja sem er búin að borða yfir sig!!

 

 

En svo kom PABBI og bjargaði deginum nema hann var eitthvað að flýta sér og húkkaði bara í bílinn og brunaði af stað tókst að rífa næstum STELLIÐ af bílnum og númeraplatan datt af!! svo núna er EKTA kagga HLJÓÐ í bílnum eins og í V8 vél!!

 

 

En þar sem ég ek um á einum HEITASTA Subaru á landinu þá BÍTUR ekkert á hann þessi elska er nú oft búin að bjarga mér.. Ótrúlegt hvað ég er búin að flytja í honum og hann festist aldrei hann er á glænýjum nagladekkjum sem þola ALLT!! svo þegar maður setur hann í gang þá malar hann eins og lítill ketlingur með kvef!!

Tilboð óskast!!

PS. 11 DAGAR

kv. Jói Bjarni!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.01.2008 22:53:39 / joibjarna

Nú hlakkar mig TIL!!

Eftir 13 daga er ég að fara til Ástralíu og þetta verður engin smá ferð!! Lára og Elva eru búnar að sýna mér myndir af fólki þarna og hvað væri hægt að gera og svona og VÁ!!

T.d. Þá byrjar ferðalagið nátla á tveimur 12 tíma flugum fyrst var ég mjög smeikur við það og ætlaði varla að nenna því en þessir Ástralar kunna sko sitt fag!! eða allavega flugfélagið sem ég flýg með. Það heitir Fosters og sýndu þær mér mynd af flugfreyjunum og ó mæ god!! Einfaldlega flottustu flugfreyjubúningar sem ég hef séð!!

Svo nátla ætla ég mér að prófa að surfa og er það eitthvað sem mig hefur dreymt um að gera lengi!! Þær prófuðu þetta einhverntíman en hættu því þeim leist ekki nógu vel á kennarana en ég get nú ekki kvartað miðað við myndina sem ég fékk að sjá.

Svo hef ég líka heyrt að þær séu geðveikt góðar í að kenna og kunna víst neyðarhjálp mjög vel sem kemur sér vel ef maður skildi nú gleypa of mikin sjó.

 

Svo er svo margt annað sem ég þarf að prófa eins og.

  •  Slást við kengúru
  • Borða kengúruna
  • drekka bjór
  • sjá Ramsay street
  • fara á Stein (pöbb)
  • forðast snák
  • forðast eitraða köngulær
  • passa mig á hákörlunum

Jább þetta verður GAMAN!!

 

kv. Jói "SPENNTI" Bjarna 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 19:21:51 / joibjarna

SKONDIÐ!!

Ég var bara svona að keyra niður hafnagötuna þegar ég sé að fyrir utan traffic þá hafði einhver dama týnt nærbuxunum sínum, Þegar ég sá þær þarna þá gat ég bara ekki annað en hleigið þar sem ég sá þær um kl. 15 á laugardegi svo þarna voru þær búnar að hanga frá kvöldinu áður.

 

 

Þetta minnti mig bara á það þegar við vorum ó Ólafsvík og við ákváðum að skipta verkalýðsfánanum út fyrir nærbuxurnar hans Bigga, það tóku nú ekki allir vel í það en þetta var fyndið samt sem áður. Og það sem gerði þetta enn fyndnara er hvað sumir gátu verið miklar teprur og vælt yfir þessu..

 

En í bili..

 

kv. Jói "soon to be Surfari" Bjarni


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.01.2008 21:18:17 / joibjarna

2008 ! ! !

Gleðilegt nýtt ár!!!

 Ég gerði nú ekkert á gamlárskvöld nema hanga heima með familíunni en Laugardagurinn fyrir gamlárskvöldið var SVAÐALEGT!! Ég hef gert lítið að því að djamma þessa önnina eða alveg síðan í Júní en Stúlkurnar frá Ástralíu ákváðu að leigja bát og halda risa partý. Það tókst svo vel að um 90 mannst mættu og stigu trilltan dans.. þetta var magnað!!

 

 

 

 En annars þá verður húsið búið á næstu dögum og get ég farið að anda rólega og byrjað að pakka öllum hlýju fötunum mínum niður í kassa og senda með skipi til DK. þar sem ég mun áður en ég fer til DK. koma við í Ástralíu.. Jább ég er að fara í sumarið í 3 vikur í heimsókn til Láru og Elvu. Öss það verður geggjað á ströndinni í sandölum og ermalausum bol!! Svo auðvitað að prófa það sem mig hefur alltaf langað til að prófa!! SURFA!!

 

 

 

Svo er það skólinn í eina önn og strax að þeirri önn lokinni þá mun ég kíkja við í thailandi og dvelja þar í 3 vikur áður en ég fer til ísl.. Það verður semsagt útskriftarferðin mín og munum við nokkur kíkja þangað saman sem erum að útskrifast á svipuðum tíma hér og þar um heimin.

 

 

 

Já það er erfitt að vera ungur í dag, alltof mikið að gerast!!

 

kv. Jói Bjarni 


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.12.2007 13:48:14 / joibjarna

Fyrsti í jólum

Jább í dag er fyrsti í jólum eða bara Jóladagur!! heyrði talað um Fyrsta í jólum í útvarpinu áðan og fannst það frekar skodið þar sem það var ekki verið að grínast með það heldur töluðu þau um fyrsta og annan í jólum þarna á bylgjunni í einhverjum endurfluttum þætti!!

En annars þá var Aðfangadagur eins og hver annar aðfangadagur bara óskup rólegur allir saman heima annaðhvort að pakka inn síðustu gjöfunum, spila eða bara að horfa á einhverja fjölskyldumynd í sjónvarpinu. Mútta sem by the way er besti kokkur í heimi að elda jólamatin í eldhúsinu og shæjse hann var góður!!

En annars þá fylgja alltaf jólunum gjafirnar og hann drési kom mér ansi vel á óvart í gær þegar hann kom með pakka til mín!! en allavega þá hafði hann verið á tónleikum með The National um daginn og var svo heppin að hitta Bassaleikarann og haldiði ekki að kallin hafi ekki bara keypt bol og fengið bassaleikarann til að kvitta á bolin og gaf mér hann svo í Jólagjöf. :D þetta er sennilega ein sú skemmtilegasta Jólagjöf sem ég hef fengið!! Takk fyrir mig! :)

Og í tilefni af því þá ætla ég að mæla með nýjasta disknum þeirra og heitir hann Boxer og er myndin linkur á myspace síðuna þeirra þar sem hægt er að hlusta á lög af plötunni.

Jólaskapið kom frekar seint í ár eða Rétt um korter í átján!! sem kom á óvart þar sem ég er venjulega komin í þvílíka jólaskapið tveim vikum fyrir jól!! þetta er kannski vísbending á að maður sé orðin gamall!!
 
Jólakveðja. Jói bjarni!

» 1 hafa sagt sína skoðun

20.12.2007 17:19:56 / joibjarna

ÁÁÁÁÁÍIIII

Í dag misti ég bárujárnsplötu í vindinn og hún fauk lengst í burtu, en fyrir utan það þá datt ég niður af þakinu og lenti sem betur fer vel og hélt að ég meiddi mig ekki neitt en allt kom fyrir ekki og ég er að drepast í hendinni núna!!!

En annars er nýjaj platan með Mugison GEGGJUÐ.. heitir Mugibugi tjek it át!  

 kv. Jói Bjarni


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 16:37:43 / joibjarna

Ríka Ísland!!!

Jæja ég verð nú bara að segja frá að ég fór í smá bæjarferð í dag.. semsagt alla leið til reykjavíkur borg óttans! En þegar ég er þarna í miðbæ RVK. þá fer ég að taka eftir því hvað ég einhvernvegin passa ENGANVEGIN þarna inní umhverfið þar sem ég var á einum svaðalegasta VINNU bíl sem sögur fara af og allir í kringum mig voru á RANGE ROVER!! Svo ég ákvað að prófa að fara í leik sem maður fór nú oft í þegar maður var lítill og leiddist í ferðalögum.. Jább ég ákvað að telja hversu marga range rovera ég myndi sjá á heimleiðinni frá RVK.

En á leiðinni heim eingöngu þá mætti ég 24 Range Rovers sem gerir ca. 240 milljónir í krónum.. Ok þetta eru flottir bílar en VÁ hvaðan koma þessir peningar hjá Íslendingum í dag ég meina þú þarft nú að hafa það helvíti gott ef þú ætlar að eiga bíl yfir 10 millj. OG HVER KAUPIR SÉR JÁRN Á HJÓLUM FYRIR 10 MILLJ.!!!! 

Ég meina ég held að ég hafi séð einn yaris eða eitthvað.. RUGL!

mig langar samt í Range Rover, hef heyrt að Glitnir séu að bjóða helv. góð lán spurning að tjekka á því! :) 

Ísland er orðið STÓRVELDI!

 

kv. Jói Bjarni 

  


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 18:33:10 / joibjarna

KYNLAUST ÍSLAND ÁRIÐ 2010

Ég las grein í 24 stundum sem ég bara verð að setja hingað inn..  

Femínastar eru heitasta umræðuefnið á kaffistofum landsins þessa stundina. Allir hafa skoðun á háværa fólkinu sem berst fyrir jafnrétti kynjanna og mun ekki linna látum fyrr en heimurinn verður kynlaus. Eitt af öðru falla vígin og það glittir í betri heim við sjóndeildarhringinn. Börn verða brátt ekki skilgreind eftir kyni. í staðinn fyrir bleikan eða bláan samfesting verða þau klædd í hvítan. Engu máli skiptir hvort um strák eða stelpu er að ræða, við fæðingu fær barnið strikamerki um úlnliðin og að lokum renna kynin saman í eitt hvorugkyn. Nöfn eins og Sigríður og Björn heyra brátt sögunni til, enda ósanngjarnt að aðgreina kynin með jafnfasískum hætti og að gefa þeim karlmannns- eða kvenmannsnöfn. Nöfn eins og Hús, Varp, Ljós og Blað eru nöfn framtíðarinnar og frumvarp um að leyfa ekki stelpum að safna síðu hári verður lagt fram á Alþingi. þegar þar er komið við sögu verður löngu hætt að leyfa lituð föt, allir klæðast hvítu og fólk verður beðið um að gæta jafnræðis í gönguhraða. Til einföldunar raðar fólk sér í raðir og gengur jafnhratt, í takt. vinstri, hægri, vinstri, hægri, snú! Markmiðin eru skýr. Eitt ríki, ein þjóð, einn leiðtogi. kynlaust Ísland árið 2010.

 Atli Fannar Bjarkason skrifaði.

 Jább maður veltir fyrir sér hvernig Ísland yrði nú ef þessir blessaðir femínistar fengu að ráða!

 kv. Jói Bjarni


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 22:10:33 / joibjarna

VÚHA

Var að fá tölvuna mína úr viðgerð og kostaði það litlar 36 þús. krónur!!!!

En þá ætti maður að geta farið að lífga þetta hérna við aðeins en þetta verður stutt í þetta skipti!!

 

en tjekkið á þessu

En þetta er diskurinn The Dresden Dolls eftir samnefndri hljómsveit eins og flest allir vita en allavega þá var ég eiginlega bara svona að enduruppgvöta þennan disk en hann kom út árið 2003 og er hin tærasta snilld og held ég mest uppá lagið MISSED ME sem hægt er að hlusta á með því einu að klikka á myndina eða einfaldlega bara ná í diskinn! En auðvitað náum við í hann niðrí plötubúð og borgum heiðarlega fyrir hann!! :)

 

En bless í bili.

kv. Jói Bjarni

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 19:49:56 / joibjarna

PLEH!!

þETTA BLOGG ER ORÐIÐ LEIÐINLEGT!!!!! það er ekkert að segja nema að ég er að vinna og vinna og vinna og vinna... Náði að steypa í dag alla útveggina svo næst er bara að vinda sér í þakið!!!

 

En nóg um það... það styttist í svaka leik á sunnudaginn.. því þá mætist Ég og Andrés í stórum leik og held ég að Ég muni sigra!! já það er nefla Arsenal vs. Liverpool og munu þessir púlarar fara heim með sárt ennið á sínum eigin heimavelli!! :)

 

 VS.

Arsenal menn eru með eitt sterkasta liðið í deildinni þetta tímabilið og það er enginn sem getur neitað því, mestu breiddina og langs besta managerinn!! :)

Og svo finst mér að Íslendingar eiga að hætta að einbeita sér af þessum fótbolta og fara að leggja allan sinn þunga á handboltann þar sem það er eina íþróttin sem við getum eitthvað í.. En aftur á móti finnst mér að það eigi nú ekki að kenna honum Eyjólfi Sverris um allan skaðan þetta er eitthvað miklu stærra en það.. Það þyrfti að byrja bara efst uppi og hrista aðeins í stjórn KSÍ!!! Og hvernin væri að fara að gefa nýjum leikmönnum smá séns í þetta blessaða landslið, þessir menn sem eru þarna núna eru orðnir alltof öryggir með sínar stöður og hættir að vinna fyrir þeim. Hleypum nýjum mönnum inní liðið sem eru til í að berjast fyrir stöðunum og þá kannski fáum við einhverja baráttu í þetta lið okkar en ekki bara einhverja skokkara eins og hann Eiður Daði okkar á til með að gera á vellinum.. hann er góður en getur stundum gert mun betur!!!

 


KV. Jói Bjarni


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 19:36:30 / joibjarna

Brjálað að gera!!

Já það má segja að það sé brjálað að gera og kemur fljótlega inn stutt video af því sem komið er af húsinu.. Þetta er svo SPENNANDI!!

 Jáps mér finst það.. en það finnst það ekki öllum.. það er gaman að smíða sérstaklega ef maður er að gera það nokkurnvegin fyrir sjálfan sig... en það verður mun skemmtilegra þegar ég mun byggja mitt eigið hús... semsagt húsið sem ég ætla að búa í..

 en já bæbæ..

Kv. Jói Bjarni


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 22:30:34 / joibjarna

JAHÁ!!

Stuttar færslur eru vanmetnar!! Mjög svo vanmetnar.. og hvað er það að vera vanmetið..

Ef eitthvað sé vanmetið er það þá ekki bara rétt mat á hlutnum.. ég meina tökum dæmi..

 Nirvana eiga að vera ofmetnir af margra mati og að vera ofmetið er anstæðan við vanmetið semsagt þá hefði ég sagt áðan að langar færslur væru ofmetnar!! En aftur að Nirvana..

 ok Allir tala um að þeir séu ofmetnir.. ef ef þú hefur ákveðið mat á þeim hvernin er það ofmat að þínu mati.. Úff ég veit varla sjálfur hvað ég er að reyna að segja en það sem ég held að ég eigi við er að hver og einn myndar sína skoðun á hlutunum  og hvernin er hægt að segja að skoðun þessarar ákveðnu persónu sé ofmat.. þetta er mat þessrar stöku persónu en ekki þíns eigins..

 Nirvana kom upp í tal í vikunni og að þeir væru ofmetnir.. Ég vill ekki meina að þeir séu það.. Nema þegar ég er að þræta við Hadda frænda þá eru þeir ofmetnir en annars.. þá vill ég meina að þeir séu það ekki.. 

 

Jæja nóg af bulli ég skil ekkert hvað ég er að reyna að segja..

 kv. Jói Bjarni


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5